Sendum frítt 15.000 kr +

Kíktu á okkur í Bæjarlindina

Karfan þín

Tæma körfu

Kannaðu einnig

Almennt
 
Factori - Mitto ehf áskilur sér rétt til þess að hætta við pantanir fyrirvaralaust til dæmis vegna rangra verðupplýsinga, innsláttarvillna eða ef varan er ekki lengur til á lager. Einnig áskilur Factori - Mitto ehf sér rétt til þess að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörur fyrirvaralaust. Við reynum eftir fremsta megni að setja inn myndir sem sýna rétta liti vörunnar en þar sem litir geta verið ólíkir milli tölvuskjáa getum við ekki tryggt það að þinn tölvuskjár sýni litinn nákvæmlega eins og hann er í raun. Stærðir á mismunandi flíkum geta í einhverjum tilfellum verið ólíkar. Ef ekki hefur verið greitt fyrir pöntun innan 48 tíma frá því að pantað var fellur pöntunin niður og varan/vörurnar verða settar aftur í sölu.
Útsöluvörum, eyrnalokkum og undirfatnaði-samfellum-pallíettukjólum fæst hvorki skilað né skipt.
 
Afhending vöru
 
Dropp kemur alla mánudaga-þriðjudaga og fimmtudaga:) 
Tíminn sem Dropp kemur er á milli kl.13.30-14.30 sem þýðir að sá starfsmaður Dropp sem pikkar upp er komin í Bæjarlind á þessu tímabili og kemur við hjá okkur í Factori og sækir.

 
Pantanir eru í flestum tilfellum afgreiddar innan sólarhrings frá pöntun en það getur þó tekið nokkra daga. Hægt er að sækja vöruna til okkar í Bæjarlind 6, Kópavogi á opnunartíma verslunarinnar. Einnig er hægt að fá vöruna senda heim með Dropp og gilda afhendingar- ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar. Factori - Mitto ehf tekur ekki ábyrgð á vöru eftir að hún hefur verið póstlögð og ber því ekki ábyrgð á tjóni sem varan kann að verða fyrir í flutningi en slíkt tjón er á ábyrgð kaupanda. Valið er hvort kaupandi sækir vöru eða fær hana senda þegar gengið er frá pöntuninni í netversluninni.
 
Greiðsla pantana
 
Hægt að greiða með greiðslukorti,netgíró eða með millifærslu.

ATH! Kaupandi greiðir flutningskostnað samkvæmt verðskrá Dropps.
Ekki er í boði að borga á staðnum hjá okkur fyrir vöru sem pöntuð er á factori.is.
 
Skilaréttur
 
Skilaréttur er 14 dagar frá útgáfudegi reiknings fyrir vörur sem keyptar eru í verslun Factori, Bæjarlind 6 og fyrir vörur sem keyptar eru í netverslun factori.is. Skilaréttur gildir að því tilskildu að varan sé ónotuð og í upprunalegu ástandi. Factori áskilur sér rétt til þess að neita að taka við vöru til baka séu ofangreind skilyrði ekki uppfyllt. Ef vöru er skilað í gegnum póstsendingu ber kaupandi allan kostnað af flutningsgjöldum.(Kvittun fyrir vörukaupum þarf í öllum tilvikum að fylgja með). Þegar vöru er skilað getur kaupandi ýmist skipt vörunni í aðra vöru fyrir sömu upphæð og vörunnar sem skilað var eða fengið inneignarnótu að verðmæti vörunnar sem skilað er. Ef vara er hins vegar á einhvern hátt gölluð borgar Factori - Mitto ehf sendingarkostnaðinn sem fellur til við skil á vöru.
Vörum sem er skilað skulu sendar til Factori - Mitto ehf, Bæjarlind 6, 201 Kópavogi.
 
Trúnaður
 
Factori - Mitto ehf heitir kaupanda fullum trúnaði er varðar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í viðskiptum við Factori - Mitto ehf og verða upplýsingarnar ekki afhendar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
 
Ef þú hefur einhverjar spurningar þá endilega hafðu samband við starfsfólk factori.is eða með tölvupósti á factori@factori.is
Kveðja
Starfsfólk Factori - Mitto ehf